Tuesday, May 13, 2008

FM Sigrún


Eignaðist snilldardót um daginn sem heitir útvarpssendir! Ég get hlustað á tónlistina mína í þvílíkum víðómi. Í græjunum í stofunni, útvarpinu í eldhúsinu og útvarpinu inni á baði -allt í sömu andránni! Að ógleymdu bílútvarpinu sem fær engan frið fyrir litla dýrinu -Xið þarf ekki að spila nema eitt lag sem ég fíla ekki of vel og þá tekur FM Sigrún óhikað við. Þar sem ég hef óendanlega gaman að þessu og hef óyfirstíganlega góðan tónlistarsmekk, að eigin mati, fékk ég hugljómun: Af hverju ekki að leyfa fleirum að njóta og deila gleðinni með langdrægari sendi?! Tek hér með á móti uppástungum að bylgjulengd á lausu.

Monday, June 18, 2007

Útskrifuð!

Hjúkrunarfræðings titillinn er í höfn! :D
Ég komst reyndar ekki á útskriftarathöfnina á laugardaginn en fékk brautskráningarskírteinið í hendur áðan og mitt fyrsta verk var að bruna niðrí Heilbrigðisráðuneyti til að sækja um starfsleyfi -eftir nokkurra daga skriffinsku ætti ég því að vera orðin löglegur hjúkrunarfræðingur ;)
Beta vinkona mín útskrifaðist líka á laugardaginn og er orðin félagsráðgjafi -hún hélt rokna garð-veislu með mat og drykk og harmonikkuspili og það besta var að allir voru samankominir, vinahópurinn og fjölskyldan hennar. Ég skemmti mér alveg konunglega en gat því miður ekki stoppað lengi -mér skildist þó að gleðin hafi verið við völd langt fram á nótt ;D

Sunday, May 20, 2007

Bráðum!


Brátt fer ég að skríða undan steini er kallast ritgerðargrýti. Nú er fyrirlestur í smíðum á rennibekk sem kallast kraftbendilssýningarforrit. Á miðvikudaginn performera ég fyrir þá sem vilja hlusta og að lokinni 10 mínútna tölu og 5 mínútna svitabaði yfir spurningum úr sal verður stærsti björninn unninn!
Við erum að tala um að það sést fyrir endann á þessu öllu saman -áður en langt um líður þá tek ég aftur fullan þátt í félagslífi og daglegum störfum.. sjáumst fljótlega ;)

Thursday, May 03, 2007

Bíll og flugferð!

Jú, orðið á götunni er rétt: Eftir að hafa hlustað á Harry Potter hljóðbækur alla vikuna (26 klst hingaðtil) á meðan ég sat sveitt yfir tölvunni að stimpla inn tölur fyrir lokaverkefnið mitt helltist yfir mig skemmtilegur spontant-fílingur sem einkenndi gærdaginn:
Sigrún keypti sér bláan bíl!! Þvílíkur draumur í dós að rúlla núna um allt í þessum líka fína vagni.
En ég lét ekki þar við sitja -eftir óvænta og skemmtilega símhringingu frá Ástu frænku dreif ég mig á internetið og bókaði flugferð til Köben í júlí til að eyða heilum fimm frænkudögum í hyggeligheitum og gleði!!!
Það ískrar í mér af ánægju að hugsa um bæði þessi snilldarkaup gærdagsins.. Það hjálpar við að dreifa huganum í lokaverkefnisstressi dauðans :S
Held að bjartsýni og tilhlökkun reddi málunum -wish me luck ;D

Thursday, April 26, 2007

We have lift-off!


YESS! Magasárið mitt skánaði til muna núna í morgun. Komst í samband við Landlæknisembættið og fæ líklegast að hefja gagnasöfnun fyrir rannsóknina strax á morgun!! Þar sem ég hef einungis 13 daga (9 virka daga) til að klára lokaverkefnið var ég orðin nokkuð á nálum yfir að vera ekki byrjuð!
It's gonna be a bright, bright sunshiny day

Tuesday, April 24, 2007



Síðasta prófinu á þessu háskólastigi er lokið!
Skrítin og góð tilfinning -en núna eru framundan tvær vikur af gagnasöfnun og úrvinnslu á lokaverkefninu. Skiladagur er akkurat sama dag og forkeppni júróvisjón svo þá verður glatt á Sigrúnar-hjalla :D

Wednesday, April 18, 2007

Eldur eldur


Á leið á kaffihúsastefnumót við Kötu mína beygir strætó af leið af Lækjargötu þar sem löggu- og slökkviliðsbílar blokka götuna og reykur yfir allt. Heyrðu, sá svo ekki betur en að Rósenberg, Café Ópera og Kebabhúsið væri brunnið í gegn! Heyrðist seinna á fréttum að Pravda væri dáið -þakið af og læti!
Hrædd um að aumingja endurnar á tjörninni eigi eftir að hósta frameftir kvöldi..

Nú er Rútur minn rauður..

Ég er enn í skýjunum yfir yndislegri helgi, nú þremur dögum seinna!
Föstudagskvöldið var mjög velheppnað, hitaði upp með félagsráðgjafanemum í pizzu og bjór á Hressó áður en við Beta klufum okkur frá hópnum og mættum á NASA til að hlýða á Svíana þrjá. Maður kannaðist við næstum annaðhvert andlit áheyrenda, árgangur 82 og þar í kring virtist fjölmenna á pleisið ;) Snilld að hitta á fólk sem maður hefur lengi ætlað að tjekká.

En þetta var rétt upphitun því konan skellti sér í ferðalag með pabba gamla á æskuslóðirnar hans. Var hreint yndislegt að fljúga þvert yfir landið -í burtu frá skólaverkefnum og stressi - eyða tíma með fjölskyldunni sem ég sé allt of sjaldan! Afi var ósköp ánægður með að við aðkomufólkið gerðum okkur ferð Austur á afmælinu. Honum var komið á óvart með tveimur harmonikkuleikurum sem tróðu upp í veislunni -allt heppnaðist eins og í sögu og hann var svo glaður ;)
Einsi bró bauð svo allri súpunni í hangikjöt um kvöldið -og annan í hangikjöti á sunnudeginum fyrir flugið heim! Sunnudagurinn var vel nýttur -rúntað í Fljótsdalinn fyrir hádegi og heimsóknir hægri vinstri fram að síðdegismat.
Í stuttu máli: púra qualitytime og gleði!