Helgin yfirstaðin..

Jú, svona líka ágætis helgarfrí hefur þetta verið.
Hófst á föstudaginn þegar okkur hjúkkulísum var boðið í heimsókn til Hrafnistu í Reykjavík þar sem vel var veitt -matur í mexíkóskum anda og nóg af áfengum drykkjum til að svala þorstanum :) Ég endaði með góðum hópi fólks á Dillon þar sem Andrea tónlistargúrú fór á kostum í lagavali og skífuþeytingum! Við vorum þarna saman Arna, Britta, Simmi, Einar, Ingibjörn, Áslaug og Auður.Voða voða gaman :)
Gærdagurinn var svo framan af bara útsofelsi og sukkmatur en seinnipartinn fórum við Simmi og Guðni í útréttingar og keyptum hreindýrakjöt og allt sem til þurfti í dýrindis máltíð. Gudda, Einar og Addi gæddu sér á kræsingunum með okkur sem voru bornar á borð um tíuleytið. Særós bættist svo í hópinn og þá var spilað Trivial fram að miðnætti, þangað til tapsærindi voru farin að skyggja á spilagleðina -nefni engin nöfn hihi ;)
Ég ákvað að halda mig heimavið þegar fólk hélt niður í bæ, ég kom mér vel fyrir undir sæng og sofnaði út frá Pretty Woman.. nokkuð kósý :)


1 Comments:
Aah, perfect weekend!
Post a Comment
<< Home