Sótthvííí

jú undanfarnir dagar hafa liðið ansi hratt..
Fór í bjór á Sirkus á fimmtudagskvöldið með honum Denis mínum -mjöög gaman að catcha up :) tókst reyndar að hella yfir mig fjórðungsglasi af bjór (kom eitthvað skemmtilegt lag og viðbrögð mín við því voru einhverjar annarlegar handahreyfingar sem enduðu með fyrrgreindum afleiðingum!)
Föstudagsmorgunn gerðist ég sek um skróp í skólanum surprise surprise en mætti so á kvöldvakt seinnipartinn. Í vinnunni tók á móti mér óskemmtileg sjón: "Deildin er í sótthví vegna Noroveirusýkingar.." sem basically þýðir að það var að ganga niðurgangs- og ælupest á deildinni.. Ég slapp nú við að smitast af þessarri líflegu veiru (sem ég til gamans felldi rafsjármynd inn af hér til hliðar) en þetta gerði vinnuna heldur óskemmtilegri þessa helgi en venjulega. En nóg um það.
Hún Embla Margrét bauð okkur nokkrum hnátunum í fjögurra ára afmælið sitt á laugardaginn -þvílíkar kræsingar og gleði sem þar tóku á móti manni -ég sver það, ég rúllaði út þremur tímum síðar, þá búin að troða mig út eins mikið og lífeðlisfræðilega er hægt!! Mjög gott og gaman ;) Auður og Áslaug toppuðu svo þennan annars ágæta laugardag með Trivialspili og rauðvínssmjatti um kvöldið. Virkilega kósí og sjerstaklega gaman fyrir mig því ég vann!! :)
Sunnudagskvöldið fórum við Simmi og Guðni í Kringluna og fengum okkur einn drykk á Kringlukránni áður en við keyptum okkur inn á Kalla og sælgætisgerðina í bíóhúsinu við hliðiná! Og mikil ósköp hvað ég hafði gaman að þessari mynd! Algjör snilld þar sem meistari Depp fór þvílíkt á kostum eins og honum einum er lagið.


6 Comments:
Eruði ekki farin að spila skuggalega mikið trivial?
jæja tjelling, eitthvað farinn að slappast bloggákafinn?
hvar er bloggið maður!!??!! Keep it up!!
ömurlegasti, ö-m-u-r-l-e-g-a-s-t-i bloggari í heimi!
I read over your blog, and i found it inquisitive, you may find My Blog interesting. So please Click Here To Read My Blog
http://pennystockinvestment.blogspot.com
Get any Desired College Degree, In less then 2 weeks.
Call this number now 24 hours a day 7 days a week (413) 208-3069
Get these Degrees NOW!!!
"BA", "BSc", "MA", "MSc", "MBA", "PHD",
Get everything within 2 weeks.
100% verifiable, this is a real deal
Act now you owe it to your future.
(413) 208-3069 call now 24 hours a day, 7 days a week.
Post a Comment
<< Home