Nú er Rútur minn rauður..
Ég er enn í skýjunum yfir yndislegri helgi, nú þremur dögum seinna!
Föstudagskvöldið var mjög velheppnað, hitaði upp með félagsráðgjafanemum í pizzu og bjór á Hressó áður en við Beta klufum okkur frá hópnum og mættum á NASA til að hlýða á Svíana þrjá. Maður kannaðist við næstum annaðhvert andlit áheyrenda, árgangur 82 og þar í kring virtist fjölmenna á pleisið ;) Snilld að hitta á fólk sem maður hefur lengi ætlað að tjekká.
En þetta var rétt upphitun því konan skellti sér í ferðalag með pabba gamla á æskuslóðirnar hans. Var hreint yndislegt að fljúga þvert yfir landið -í burtu frá skólaverkefnum og stressi - eyða tíma með fjölskyldunni sem ég sé allt of sjaldan! Afi var ósköp ánægður með að við aðkomufólkið gerðum okkur ferð Austur á afmælinu. Honum var komið á óvart með tveimur harmonikkuleikurum sem tróðu upp í veislunni -allt heppnaðist eins og í sögu og hann var svo glaður ;)
Einsi bró bauð svo allri súpunni í hangikjöt um kvöldið -og annan í hangikjöti á sunnudeginum fyrir flugið heim! Sunnudagurinn var vel nýttur -rúntað í Fljótsdalinn fyrir hádegi og heimsóknir hægri vinstri fram að síðdegismat.
Í stuttu máli: púra qualitytime og gleði!
Föstudagskvöldið var mjög velheppnað, hitaði upp með félagsráðgjafanemum í pizzu og bjór á Hressó áður en við Beta klufum okkur frá hópnum og mættum á NASA til að hlýða á Svíana þrjá. Maður kannaðist við næstum annaðhvert andlit áheyrenda, árgangur 82 og þar í kring virtist fjölmenna á pleisið ;) Snilld að hitta á fólk sem maður hefur lengi ætlað að tjekká.
En þetta var rétt upphitun því konan skellti sér í ferðalag með pabba gamla á æskuslóðirnar hans. Var hreint yndislegt að fljúga þvert yfir landið -í burtu frá skólaverkefnum og stressi - eyða tíma með fjölskyldunni sem ég sé allt of sjaldan! Afi var ósköp ánægður með að við aðkomufólkið gerðum okkur ferð Austur á afmælinu. Honum var komið á óvart með tveimur harmonikkuleikurum sem tróðu upp í veislunni -allt heppnaðist eins og í sögu og hann var svo glaður ;)Einsi bró bauð svo allri súpunni í hangikjöt um kvöldið -og annan í hangikjöti á sunnudeginum fyrir flugið heim! Sunnudagurinn var vel nýttur -rúntað í Fljótsdalinn fyrir hádegi og heimsóknir hægri vinstri fram að síðdegismat.
Í stuttu máli: púra qualitytime og gleði!


0 Comments:
Post a Comment
<< Home